onsdag den 13. maj 2009

Gervigreind

x
Þeir sem halda því fram að mennirnir séu greindustu lífverur jarðarinnar, hafa algjörlega rangt fyrir sér. Bakteríur eru okkur mun snjallari og kænni.
Fyrir þremur vikum síðan tóku sér bólfestu í mér bakteríur af áður óþekktri tegund, eða öllu heldur, með áður óþekkta greindarvísitölu. Að sjálfsögðu fór ég beint til heimilislæknisins þegar ég var þeirra fyrst vör og bað um pensillín. Eftir miklar prófanir og rannsóknir hjá hjúkrunarkonunni fékk ég ekkert pensillín, því þetta voru ekki streptókokkar, heldur einhverjir fjarskyldir frændur þeirra. Síðan hafa bölvaðar pöddurnar herjað grimmt á mig.
Fyrst fékk ég svæsna hálsbólgu, varð svo rám og byrjaði að hósta. Eftir einnar og hálfrar viku veikindi, vaknaði ég upp einn morguninn, hvorki með hósta né hálsbólgu og varð alveg ægilega glöð. Ég varð SVO glöð, að ég skellti mér í skógarferð með dönskum vinum mínum. Það sem ég áttaði mig ekki á, var að ofurgreindu bakteríurnar voru bara að plata mig. Þær vildu að ég færi út í kuldann, svo þær gætu gert mig enn veikari daginn eftir.
Morguninn eftir vaknaði ég svo stútfull af kvefi og hóstinn orðinn tíu sinnum verri. Næstu dagana fór ég ekkert í skólann, heldur lá bara heima í rúmi og barðist við innrásarliðið. Um miðja vikuna fór að heyrast brak og hvæs þegar ég andaði, þannig að ég ákvað að fara til læknisins á fimmtudeginum og láta kíkja á mig.
Ég vaknaði á fimmtudagsmorguninn, fór í sturtu og tók svo strætó til læknisins. Á leiðinni áttaði ég mig á því að hvæsið og brakið í lungunum á mér heyrðist ekkert lengur. Ég vissi sem var, að læknirinn myndi ekkert vilja gefa mér nema hann heyrði í kvikindunum, þannig að ég ákvað, full bjartsýni, að mér væri líklegast bara farið að batna, hætti við læknisferðina og fór í skólann í staðinn. Hringdi svo í lækninn til að fá að fresta ofnæmissprautunni minni, sem ég hafði átt að fá þennan dag, um viku. Hvæsið og brakið í lungunum á mér byrjaði að sjálfsögðu aftur uppúr klukkan þrjú, þegar læknastofan var búin að loka!
Sama kvöld, þegar ég fór að sofa, var ég farin að eiga örðugt um andardrátt. Mér til mikillar skelfingar áttaði ég mig á því að næsta dag var 1. maí = lokað hjá lækninum! Ég tók eina parkódín forte, fór að sofa og vonaði að þetta væri bara einhver ímyndun í mér...........vaknaði svo morguninn eftir og átti enn erfitt með að anda. Mér leist ekki á að vera svona fram á mánudag, þannig að ég hringdi í Tinu, sem hjálpaði mér að finna símanúmerið hjá vaktlækninum. Svo hringdi ég í vaktlækninn og sagðist vera búin að vera veik í tvær vikur, með hálsbólgu, hósta og kvef, og nú gæti ég ekki andað lengur. Manngreyinu leist auðvitað ekkert á lýsinguna og sagði mér að koma strax svo hann gæti hlustað mig. Mikið svakalega varð ég glöð, híaði á bakteríurnar og lagði af stað á hjólinu mínu. Sem betur fer hafði ég í einum ævintýraleiðangrinum óvart hjólað fram á sjúkrahúsið, þannig að ég vissi hvar það var og gat farið beinustu leið.
Vaktlæknirinn byrjaði á að draga upp trépinnann og skoða í hálsinn á mér. Þar sá hann auðvitað ekkert, því hálsbólgan var löngu bötnuð. Svo spurði hann um kvefið og ég gat ekki annað en viðurkennt að það væri líka heldur farið að skána. Á því augnabliki held ég að hann hafi alveg hætt að taka nokkurt mark á mér. Hann kíkti samt í eyrun á mér (sem ég hafði ekkert heyrt með alla vikuna út af kvefinu) en fullyrti að þetta væri bara „kvef í eyrunum“ á mér. Fyrsta skipti sem ég heyri talað um kvef í eyrum.......hmm. Næst dró maðurinn upp hlustunarpípuna og þá fór ég að kætast. Sá í hillingum allar pensillíntöflurnar sem ég fengi nú skrifað upp á. Ég er enn að reyna að átta mig á því sem gerðist næst: Vaktlæknirinn sagði mér að anda djúpt, sem ég og gerði, nema hvað, að hvæsið og brakið í lungunum var bara nærri alveg horfið. Það heyrðist oggolítið inn á milli, ég virkilega vandaði mig við að anda djúpt svo það myndi heyrast, en í hvert skipti sem það heyrðist, þá lyfti læknirinn hlustunarpípunni til að skipta um stað á bakinu á mér. Það var engu líkara en helvítis bakteríurnar héldu bara niðri í sér andanum meðan læknirinn var að hlusta og gripu svo andann á lofti inn á milli þegar hann færði hlustunarpípuna. Mannræfillinn sá auðvitað ekki við þessum ofurgreindu veirum, enda líklega ekki nema í meðallagi greindur sjálfur, sagði mér að ég væri bara með venjulegt kvef og yrði bara að bíða eftir að þetta lagaðist. Ég fylltist örvæntingu, (því ég vissi við hvaða ofurefli var að etja), lagðist á hnén fyrir framan hann, felldi fögur tár og grátbað hann um að skrifa að minnsta kosti upp á astmalyf fyrir mig, svo ég gæti andað meðan mér væri að batna! „Jú, það gæti kannski hjálpað,“ sagði hann, skrifaði resept og sendi mig heim í rúm. Það þarf auðvitað ekki að taka það fram að hvæsið og brakið upphófst aftur um leið og ég var komin út af læknastofunni!
Ég var nú samt heldur bjartsýnni en áður, hjólaði glöð í næsta apótek og sótti astmapústið mitt. Það verður að segjast eins og er, að það hjálpaði mikið við öndunina. Næstu daga á eftir smábatnaði kvefið, þótt það tæki alveg fimm daga í viðbót þar til ég fór að heyra eitthvað með hægra eyranu. Mér fannst hjálpa aðeins að hafa hitapoka á brjóstkassanum, þannig að næstu daga á eftir var ég mest heima í rúmi, með hitapokann og heitt te, og reyndi að lesa.
Í dag átti ég svo að mæta í ofnæmissprautuna hjá heimilislækninum mínum. Ég sagði við sjálfa mig að það þýddi ekkert að biðja hann um að hlusta mig, fyrst mér væri farið að skána, þannig að ég ákvað bara að láta það eiga sig...........gæti í mesta lagi spurt hann hvað ég ætti að nota pústið lengi! Ég fór til læknisins, fékk sprautuna, sýndi honum pústið og spurði hvort ég ætti að nota það alveg þar til mér væri batnað? Áður en ég vissi hvaðan á mig stóð veðrið, var hann búinn að rífa upp hlustunarpípuna, draga bolinn minn upp að öxlum og byrjaður að hlusta. Ég vandaði mig við að draga andann eins djúpt og ég gat, og pöddurnar, sem höfðu alls ekki átt von á þessari skyndiárás, gátu ekkert gert sér til bjargar. Ég var úrskurðuð með bæði bronkítis og lungnabólgu og send heim með resept upp á tíu daga pensillínkúr.

ÉG ELSKA DANSKA HEIMILISLÆKNINN MINN!!!

Kveðja,
Elín
x

7 kommentarer:

  1. Mikið er gott að þú ert á batavegi :D farðu nú vel með þig ;)

    SvarSlet
  2. Bara að þessir læknar hlustuðu allir (á) þig

    Hallur

    SvarSlet
  3. He he....en verður óhætt að heimsækja þig kona?

    Kv. Anita

    SvarSlet
  4. Hmm.......á doktorpunkturis stendur að maður smiti bara fyrstu þrjá dagana.......en.......þar sem þetta er greinilega ný og óþekkt tegund örvera, hinar ofurgreindu örverur, þá eru þær alveg eins líklegar til að hafa fundið leið framhjá því......gæti ég trúað! Þú verður bara að ákveða hvort það borgar sig fyrir þig að taka sénsinn.......ég þori ekki að lofa neinu! ;-) Við verðum bara að vona að pensillínið verði farið að virka á þær..........

    SvarSlet
  5. Það var nú gott að þetta var ekki swine-flu! Farðu svo vel með þig. Ég hef fengið lungnabólgu 3x og það er ekkert grín. Hugsaði til þín þegar ég gekk um stræti Kastrup á sunnudaginn á leið frá Brussels.

    Kv.,
    Eygló

    SvarSlet
  6. Sumir eru eins og segulstál á hitt kynið, aðrið á algjöra aumingja... ert þú ekki sem segulstál á örverur??
    Linda

    SvarSlet
  7. Tja, ef ég er örverusegulstál, þá er það nú bara nýbyrjað........hef ekki veikst svona hastarlega áratugum saman....... Þá hlýtur nú að vera skemmtilegra að virka eins og segulstál á hitt kynið, er það ekki.....?!? Maður hefur sjálfur greinilega ekkert um þetta mál að segja..........

    SvarSlet